Beint á leiðarkerfi vefsins

Gull- og silfursmíði

Gull- og silfursmíði er sérstök iðngrein sem kennd er í iðnskóla og í fyrirtækjum undir leiðsögn meistara.
Nám í gull- og silfursmíði er fjögurra ára samningsbundið nám, fimm annir í iðnskóla samtals 98 einingar og 72 vikna starfsnám.

Vinna með skóla er metin sem starfsþjálfun að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum.
Nemi sem ekki er í fullu námi (20 ein.) getur unnið með skóla og fengið þann tíma metinn til styttingar í vinnustaðaþjálfun.
"Sannanleg vinna með skóla styttir námstíma skv. eftirfarandi reglu; nemi í 10 eininga námi á önn fær metna 22 klst. vinnu á viku til styttingar á námstíma, nemi í 15 eininga námi á önn fær metna 11 klst. vinnu á viku o.s.frv. Miðað er við að samanlögð vinna (skóli + starf) fari ekki yfir 44 klst. á viku."
Aðalnámskrá framhaldsskóla
Almennur hluti - 1999

Sjá námskrá í Gull- og silfursmíði, 2005.

Markmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þá leikni og faglegu þekkingu sem krafist er til sveinsprófs eftir að hafa lokið tilskildum einingafjölda og vinnustaðaþjálfun.

Á Norðurlöndum og í Þýskalandi eru skólar á framhalds- og háskólastigi sem viðurkenndir hafa verið af menntamálaráðuneytinu og Félagi íslenskra gullsmiða.


Eyðublað fyrir vinnuvottorð vegna námssamnings
Eyðublað vegna riftunar á námssamningi
Umsókn um sveinspróf
Eyðublað fyrir umsókn um gerð námssamnings
Smelltu hér til að sækja Adobe Acrobat Reader

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd