Úrsmíði
Úrsmíði er löggilt iðngrein. Úrsmiðir annast viðgerðir, viðhald og hreinsanir á úrum og klukkum. Úrsmiðir endurnýja eða smíða varahluti í gömul úr og klukkur, fóðra upp vegna slits, skipta um fjaðrir og skeyta saman ef þarf. Úrsmiðir veita ráð við val á úrum og klukkum.IÐAN fræðslusetur hefur umsýslu með námssamningum og sveinsprófum í úrsmíði.
Sveinspróf verður haldið ef umsækjandi uppfyllir skilyrði til sveinsprófs, þ.e. hefur lokið burtfararprófi frá skóla og samningsbundnu starfsnámi.
Umsóknareyðublöð má nálgast hér hægra megin á síðunni.
Leit
Mynd














