Beint á leiðarkerfi vefsins

Málm- véltækni- og framleiðslugreinar

Nám í málmiðngreinum er skipulagt með þeim hætti að nemendur innritast í sameiginlegt tveggja ára grunnnám málmiðngreina. Að því loknu geta þeir innritast í sérnám í málmiðngreinunum blikksmíði, rennismíði, vélvirkjun eða stálsmíði. Um er að ræða löggiltar iðngreinar og lýkur náminu með sveinsprófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Blikksmíði - 6 annir í skóla og 60 vikna samningsbundin starfsþjálfun.
Rennismíði - 6 annir í skóla og 60 vikna  samningsbundin starfsþjálfun.
Stálsmíði - 6 annir í skóla og 60 vikna  samningsbundin starfsþjálfun.
Vélvirkjun - 6 annir í skóla og 60 vikna  samningsbundin starfsþjálfun.

Málmsuða er löggilt iðngrein og er undirgrein í stálsmíði. Meðalnámstími er fjórar annir en einnig er hægt að taka valda hluta þess og sérhæfa sig í ákveðnum sviðum. Málmsuðumenn eiga þess ekki kost að stunda nám í meistaraskóla nema þeir ljúki einnig námi í stálsmíði.

Netagerð - 3 annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun. Greinin er löggilt iðngrein þar sem náminu lýkur með sveinsprófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

 


Eyðublað fyrir vinnuvottorð vegna námssamnings
Eyðublað vegna riftunar á námssamningi
Umsókn um sveinspróf
Eyðublað fyrir umsókn um gerð námssamnings
Smelltu hér til að sækja Adobe Acrobat Reader

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd