Blikksmíði
Nám í blikksmíði er 6 annir í skóla og 15 mánaða samningsbundið vinnustaðanám.
Vinnustaðanám er skipulagt sem 15 mánaða starfsþjálfun og má hefjast þegar nemandi hefur lokið tveimur námsönnum. Gert er ráð fyrir að vinnustaðanám standi yfir í að minnsta kosti sex mánuði eftir að skólanámi lýkur.
Fyrirtæki gerir samning við nemanda um þjálfun á vinnustað og skuldbindur sig til að fylgja þeim markmiðum sem tilgreind eru fyrir viðkomandi iðngrein og framfylgja þeim námsþáttum, verklegri þjálfun og faglegum vinnubrögðum sem krafist er í blikksmíði.
Leit
Mynd














