Netagerð
Um námið
Netagerð er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að veita nemendum þekkingu og færni til þess að takast á við þau viðfangsefni sem netagerðarmenn inna af hendi, s.s.. hönnun, framleiðslu, viðhald og viðgerðir á veiðarfærum.
Meðalnámstími er fjögur til fjögur og hálft ár, samtals tvær-þrjár annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 120 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Netagerð er löggilt iðngrein og er kennd í Fjölbrautarskóla Suðurnesja.
Helstu námsgreinar
Sérgreinar tengdar iðninni s.s. fagleg netagerð, eðlisfræði, grunnteikning, iðnteikning, líkanagerð og veiðar og veiðarfærafræði.
Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og enska.
Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Sjá nánar Aðalnámskrá framhaldsskóla - Starfsnámsbrautir.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Námstími
4 - 4 1/2 árLeit
Mynd














