Vélvirkjun
Nám í vélvirkjun er fjögurra ára nám sem skiptist í 6 annir í skóla og 15 mánaða starfsnám á vinnustað.
Nám í skóla
Grunnnám í málm- og véltækni er skipulagt sem fjögurra anna nám. Að því loknu velja nemendur um sérnám í blikksmíði, rennismíði, vélvirkjun eða stálsmíði, sem tekið er á 5. og 6. námsönn.
Nám á vinnustað
Vinnustaðanám er skipulagt sem 15 mánaða starfsþjálfun og má hefjast þegar nemandi hefur lokið tveimur námsönnum. Gert er ráð fyrir að vinnustaðanám standi yfir í að minnsta kosti sex mánuði eftir að skólanámi lýkur. Fyrirtæki gerir samning við nemanda um þjálfun á vinnustað og skuldbindur sig til að fylgja þeim markmiðum sem tilgreind eru fyrir viðkomandi iðngrein og framfylgja þeim námsþáttum, verklegri þjálfun og faglegum vinnubrögðum sem krafist er í vélvirkjun.
Prófskírteini að loknu vélstjórnarnámi D gildir sem iðnskólaskírteini í vélvirkjun. Að loknu vélstjórnarnámi C og 15 mánaða starfsþjálfun á námssamningi, hjá viðurkenndu málmiðnaðarfyrirtæki, getur nemandi gengist undir sveinspróf í vélvirkjun.
Leit
Mynd














