Matvæla- og veitingagreinar
Nám í matvælagreinum skiptist í skólanám og vinnustaðanám. Ætlast er til að nám í skóla og nám á vinnustað tvinnist saman og myndi eina heild. Skólanámið hefst með einnar annar sameiginlegu grunnnámi en að því loknu velja nemendur sérnám í bakaraiðn, framreiðslu, kjötiðn eða matreiðslu.Sérnámið skiptist annars vegar í bóklegt og verklegt nám í skóla og hins vegar vinnustaðanám:-
Bakaraiðn — 3 annir í skóla og 126 vikna vinnustaðanám.
-
Framreiðsla — 3 annir í skóla og 80 vikna vinnustaðanám.
- Kjötiðn – 3 annir í skóla og 126 vikna vinnustaðanám.
- Matreiðsla — 3 annir í skóla og 126 vikna vinnustaðanám.
Nemendur geta valið hvort þeir hefja námið í skóla eða á vinnustað. Hvor leiðin sem valin er skal gera skriflegan námssamning milli nemanda og fyrirtækis um umfang og tilhögun vinnustaðanámsins.
Gert er ráð fyrir að ferilbók fylgi nemanum í gegnum námið. Þar er lýst markmiðum, viðfangsefnum og verkþáttum í vinnustaðanámi og bera nemandi og meistari sameiginlega ábyrgð á því að þjálfun nemandans í einstökum verkefnum verði skráð í bókina. Mælt er með því að fyrirtæki sem taka nemendur á námssamning feli ákveðnum tilsjónarmanni að hafa með höndum skipulagningu námsins og umsjón með því.
Vinnustaðanámið skal tekið á viðurkenndum vinnustað og undir stjórn iðnmeistara í viðkomandi iðngrein. Gera skal samkomulag um vinnustaðanámið áður en það hefst. Þar sem skólanámið og vinnustaðanámið samtvinnast er nauðsynlegt að góð samvinna eigi sér stað á milli þessara tveggja fræðsluaðila jafnframt því sem um er að ræða ákveðna verkaskiptingu og sérhæfingu. Verktakavinna er ekki metin.
Þessi fyrirtæki hafa verið með nema í vinnustaðanámi.
Upplýsingar um sveinspróf í matvælagreinum er að finna undir hverri iðngrein fyrir sig.
Sveinspróf í matreiðslu og framreiðslu eru haldin tvisvar á ári í desember og maí. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember og 1. april.
Sveinspróf í bakariðn og kjötiðn eru haldin í maí hvert ár ef næg þátttaka fæst. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Leit
Mynd














