Beint á leiðarkerfi vefsins

Almennar upplýsingar um vinnustaðanám

Nemi sem lokið hefur prófi í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum við framhaldsskóla gerir samning við vinnustað um starfsnám.

Starfsnám í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum tekur 48 vikur að lágmarki. Um leið og neminn hefur ráðið sig til vinnu sækir hann um vinnustaðanámssamning. Eyðublöðin fást hér. 

Í 32. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla segir m.a.:

"Verknám og starfsþjálfun á vinnustað byggist á ákvæðum aðalnámskrár og reglum um vinnustaðanám í viðkomandi starfsgrein. Um vinnustaðanám skal gera sérstakan starfsþjálfunarsamning milli skóla og vinnustaðar eða námssamning milli nema og vinnuveitanda. Námssamningur skal undirritaður við upphaf vinnustaðanáms og staðfestur innan eins mánaðar. ..."

Starfsnám í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum skipulagt sem þriggja ára nám í verknámskerfi, 79 eininga nám í skóla (4 annir) og 48 vikna nám/þjálfun á vinnustöðum (sjá Aðalnámskrá framhaldsskóla, upplýsinga- og fjölmiðlagreinar 2001). Neminn getur tekið vinnustaðanámi á einum vinnustað eða skipt því á milli fleiri vinnustaða. Þegar vinnustaðanáminu er skipt á milli vinnustaða þarf að gera nýjan samning. Í ferilbók eru þeir verkþættir skráðir sem neminn lærir á námstímanum.


Sveinspróf í bókbandi, grafískri miðlun og prentun voru haldin dagana 19. til 26. maí, sl. umsóknarfrestur var til 1. apríl.

Mat á starfsreynslu í fjölmiðlatækni og bókasafnstækni fór fram á sama tíma.


Eyðublað fyrir vinnuvottorð vegna námssamnings
Eyðublað vegna riftunar á námssamningi
Umsókn um sveinspróf
Eyðublað fyrir umsókn um gerð námssamnings
Smelltu hér til að sækja Adobe Acrobat Reader

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd