Beint á leiðarkerfi vefsins

Í leit að starfi

Áhugasviðskönnunin Í leit að starfi hentar einstaklingum sem eru yngri en 20 ára. Niðurstöður þess eru mjög aðgengilegar og fer náms- og starfsráðgjafi yfir þær með viðkomandi. 

Í leit að starfi (LS) er íslensk stöðlun og staðfæring Brynhildar Scheving Thorsteinsson á bandarísku áhugasviðskönnuninni Self-Directed Search (SDS) sem gefið er út að Psychological Assessment Resources.

Áhugasviðspróf Hollands, SDS, er eitt mest notaða áhugasviðspróf í heimi (Guichard og Lenz, 2005). SDS kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1970 og hefur verið gefið út fjórum sinnum eftir það, síðast árið 1994 (Holland, 1994). Árið 2007 hafði SDS verið þýtt á 16 tungumál (Ruff, Reardon og  Bertosch, 2007).

Kenning John L. Hollands sem hefur haft gríðarleg áhrif á skilgreiningu og mælingu áhuga undanfarna áratugi (Rounds og Tracey, 1996) og um hana og verk Hollands hafa verið birtar um 200 greinar (Ruff et. al., 2007). Árið 2007 hafði SDS verið þýtt á 16 tungumál (Ruff, Reardon og  Bertosch, 2007).



Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd