Beint á leiðarkerfi vefsins

Strong áhugasviðskönnun

Áhugakönnun Strong (Strong Interest Inventory) er elsta og mest rannsakaða áhugasviðspróf í heimi. Margar milljónir manna víða um heim nota niðurstöður þess til þess að auðvelda val á námi og starfi. Á Íslandi hefur þetta próf verið í notkun frá árinu 1986.

Svörin við spurningunum á áhugakönnun Strong ákvarða niðurstöðurnar.

Niðurstöður áhugakönnunar Strong segja þér eftirfarandi:
• Störf og starfsumhverfi sem líklegast er að þú verðir ánægð(ur) með.
• Samstarfsfólk sem þú átt ýmislegt sameiginlegt með.
• Námsleiðir sem henta þér.
• Hversu líkt áhugasvið þitt (eða ólíkt) er áhugasviði fólks í mismunandi störfum.
• Tómstundir.
• Ýmiss konar valkosti við val á starfi eða tómstundum.
• Almennt yfirlit yfir áhugasvið þitt.
• Starfs- og námsumhverfi sem fellur að áhugasviði þínu.
• Hvernig áhugasvið þitt lýsir stjórnunar- og samskiptastíl þínum og hversu vel þér fellur að taka áhættu.

Þegar farið er í gegnum niðurstöðurnar þarf að muna að þetta er könnun á áhuga en ekki á hæfileikum.

Niðurstöðurnar gefa til kynna í hvaða átt áhuginn beinist varðandi val á námi, starfi og tómstundum. Ennfremur hvernig áhugasvið próftaka fellur að áhugasviði fólks í hinum ýmsu starfsgreinum. Segjum svo að áhugi próftaka sé líkur áhugasviði verkfræðinga þá segja niðurstöðurnar ekkert um þá stærðfræðihæfileika sem þarf til þess að læra verkfræði. Þær segja einungis að líklega hafi hann gaman af því að vinna við verkefnalausnir og með því fólki sem vinnur innan sviðs verkfræði.

Hafa ber í huga að við val á starfi þarf að taka margar ákvarðanir sem tengjast innbyrðis og áhugakönnun Strong gefur upplýsingar sem eru gagnlegar til þess að byrja að vinna að þeim ákvörðunum.



Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd