Bættu um betur
Hefur þú áhuga á raunfærnimati í þinni grein? Láttu okkur vita.
Verið er að kanna áhuga einstaklinga á raunfærnimati í ýmsum iðngreinum s.s.:
Blikksmíði Stálsmíði Vélvirkjun
Bifvélavirkjun Bílamálun Bílasmíði
Húsasmíði Málaraiðn Pípulögnum
Framreiðslu Kjötiðn Matreiðslu Matartækni
Ef þú hefur áhuga hafðu þá samband við IÐUNA fræðslusetur í síma 590-6400 og fáðu frekari upplýsingar.
Margir einstaklingar á vinnumarkaðnum hafa í gegnum áralanga reynslu byggt upp umtalsverða færni í ákveðinni iðngrein, en ekki lokið námi af einhverjum ástæðum. Þessir einstaklingar búa yfir raunfærni sem vert er að skoða og meta. Raunfærni er samanlögð færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi.
Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd að nám fari ekki eingöngu fram innan formlega skólakerfisins heldur í alls konar aðstæðum en að allt nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað. Tilgangur raunfærnimats er að draga fram og meta fjölbreytilega raunfærni sem einstaklingurinn býr yfir. Og aðstoða einstaklinginn við að brautskrást úr skóla.
Leit
Mynd













