Ummæli
Þátttakandi 1 lauk raunfærnimati í júní 2007 og stefnir á sveinspróf jól 2008.
Ef ég hefði ekki séð aulýsinguna frá ykkur þá hefði ég aldrei farið í þetta nám. Þetta er mjög gott tækifæri fyrir menn með reynslu í faginu. Námið hefur verið sett mjög vel upp fyrir mig og er ég hæst ánægður með að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þessu. Ég sé fram á það að geta tekið það sem ég á eftir í skólanum á þremur önnum og var þó aðeins með 12 einingar þegar ég byrjaði.
Þátttakandi 2 lauk raunfærnimati í júní 2007 og stefnir á sveinspróf vor 2008.
Þetta er frábært framtak. Í heild sinn mjög vel að þessu staðið og gert af miklum áhuga allra sem að þessu standa. Ég vona að framhaldið verði jafn gott og þægilegt.
Þátttakandi 3 lauk raunfærnimati í júní 2007 og stefnir á sveinspróf vor 2008.
Er mjög ánægður með að hafa fengið þetta tækifæri til að klára loksins námið. Þetta hefur hjálpað mér mjög mikið og vonandi mun haustið ganga vel. Iðunn náms- og starfsráðgjafi hélt vel utan um þetta og stóð sig gríðarlega vel. Það sem skipti miklu máli að hún fylgdi mér vel eftir sem ég nefnilega þarf.
Mér finnst mjög mikilvægt að þessi leið sé orðin möguleg og hægt sé að taka tillit til þeirra sem hafa unnið við smíðar í öll þessi ár en hafa ekki komið sér í að klára námið. Viðmót þeirra kennara sem tóku greiningarviðtal við mig var gott og þægilegt. Ég er ánægður með verkefnið og þið eruð að gera góða hluti!
Eiginkona þátttakenda sem lauk raunfærnimati vor 2007.
Verkefnið er frábært og einmitt það sem maðurinn minn þarf og þurfti. Ég er ánægð með vinnu Iðunnar, náms- og starfsráðgjafa og þetta framtak. Takk kærlega fyrir að hafa gefið honum tækifæri og stutt svona vel við hann. Nú er bara að sjá hvernig gengur að ljúka skólanum.
Þátttakandi 4 lauk raunfærnimati í júní 2007 og fer í sveinspróf desember 2007.
Ég þakka kærlega fyrir gott og árangursríkt verkefni. Á góðri íslensku var þetta gott spark í rassinn í þá átt að ég klári nú loksins sveinsprófið og fari að huga að meistaranámi, sem nú fyrst virðist ekki vera langt undan...
Leit
Mynd














