Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað
Námsráðgjöf á vinnustað er þróunarverkefni sem unnið er í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og stendur til boða fyrir fólk á vinnumarkaðinum.
Markmið verkefnisins er að starfsmönnum fyrirtækja verði gefinn kostur á námsráðgjöf á vinnustaðnum og opna þar með aðgengi fólks á vinnumarkaði að ráðgjöf og hvetja það til virkrar þátttöku í símenntun sinni og færniþróun. Með því er stefnt að auknum tækifærum fyrir félagsmenn IÐUNNAR til að afla sér upplýsinga um t.d. mögulegar námsleiðir, einstök námskeið og aðstoð við að setja sér námstengd markmið.
Hefur þú áhuga á að:
• þróa færni þína í starfi?
• auka möguleika þína í starfi og á vinnumarkaði?
• skoða þá möguleika sem þú hefur á námi og setja þér námsmarkmið?
• rækta sjálfa(n) þig, auka lífsgæði þín og stuðla að aukinni ánægju?
Náms- og starfsráðgjafi getur veitt:
• upplýsingar um nám og störf, mögulegar námsleiðir.
• aðstoð við að kanna áhugasvið og hæfni.
• aðstoð við að setja markmið og útbúa námsáætlun.
• ráðgjöf um persónuleg málefni.
Framkvæmdarferlið
1. Samkomulag fyrirtækis og ráðgjafa.
2. Ráðgjöfin kynnt fyrir starfsmönnum.
3. Einstaklingar skrá sig í einstaklingsviðtal á vinnutíma.
4. Viðtalstími skipulagður í samráði við yfirmenn.
5. Viðtöl, á vinnustað eða húsakynnum IÐUNNAR fræðsluseturs.
6. Eftirfylgni, úrvinnsla, hvatning og stuðningur.
Ávinningur fyrirtækis sem býður starfsfólki sínu náms- og starfsráðgjöf á vinnustað:
• aukin færni starfsmanna.
• meiri starfsánægja og almenn lífsánægja starfsmanna.
• fær haldgóða yfirsýn yfir færniþætti starfsmanna sinna, auðveldar val á fræðslu við hæfi og stuðlar þannig að auknum gæðum í framleiðslu og þjónustu.
• styrkur starfsmanna er styrkur fyrirtækis.
Ávinningur starfsmanns:
• hvatning til að vera virkur í símenntun og færniuppbyggingu í starfi og einkalífi.
• skoða áhuga og hæfni hans.
• fá upplýsingar um möguleika í námi og sí-og endurmenntun.
• aðstoð við markmiðssetningu í starfi.
• aðstoð við val á námi, námskeiði og/eða frekari þróun í starfi.
Ítarlegra umfjöllun um námsráðgjöf á vinnustað finnst í grein Fjólu Maríu Lárusdóttur starfsráðgjöf Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Þróun ráðgjafar á vinnustöðum í Gáttinni, ársriti Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Leit
Mynd














