Vinnustaðanám - Námssamningur
Almennar upplýsingar
Vinnustaðanám er mikilvægur hluti af námi og nemendur sem stunda nám á námsbrautum sem leiða til lögverndaðra starfsréttinda s.s. í bygginga- og mannvirkjagreinum, hársnyrtiiðn, málmiðnum og bílaiðn stunda nám innan svonefnds meistarakerfis. Í meistarakerfi geta nemendur:- gert námssamning við iðnmeistara og lokið almennu bóknámi og fagbóklegu námi skv. námskrá skólans.
- innritast í grunndeild brautarinnar þar sem námið tekur 1 til 2 ár. Þegar námi í grunndeild er lokið gerir nemandinn námssamning við iðnmeistara um starfsþjálfun í atvinnulífinu og lýkur námi að öðru leyti sbr. ofanritað.
Nemendur verða að vera orðnir 16 ára til að mega fara á námssamning. Upphafsdagsetning námssamnings skal miðast við þann tíma sem nemi byrjar á námssamningi.
Hvað þarf að gera til að komast á námssamning? Sjá hér
Reglugerðir um námssamninga hér.
Fjöldi vikna í vinnustaðanámi fer eftir iðngrein. Til að skoða lengd námsins á hverju sviði fyrir sig skaltu ýta hér.
Leit
Mynd













