Raunfærni
Raunfærni er færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti til dæmis með starfsreynslu, starfsnámi, frístundum, námi, félagsstörfum og fjölskyldulífi. Þetta getur verið bæði formlegt nám sem fer fram innan skólakerfisins og óformlegt nám sem fer fram utan skólakerfisins.
Mat á raunfærni er mikil hvatning til náms fyrir einstaklinga á vinnumarkaðanum og gefur þeim tækifæri á að ljúka námi á sínum forsendum.
Bættu um betur er tilraunaverkefni sem unnið er í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er gengið út frá að eðlilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Verkefnið felst í því að búa til leiðir til að meta færni þátttakenda, stöðu þeirra og gefa þeim kost á að ljúka námi sínu. Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd að nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað. Inntökuskilyrði í raunfærnimat er 25 ára lífaldur og 60 mánaða starf í faginu (staðfest með opinberum gögnum).
Raunfærnimatsferlið er í fimm liðum. Nánar um ferlið hér.
1. Upplýsingum miðlað
2. Skráning í færnimöppu
3. Greiningarviðtal
4. Staðfesting á raunfærni
5. Mat og viðurkenning.
6. Hvað stendur eftir - skólaganga.
Hægt er að finna nánari upplýsingar um raunfærni á heimsíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Einnig er hægt að nálgast bækling um Raunfærni og raunfærnimat hér.
Leit
Mynd













