Beint á leiðarkerfi vefsins

Sérúrræði í sveinsprófi

IÐAN fræðslusetur leitast við að veita jöfn tækifæri til náms og hér eru tilgreind þau úrræði sem það hefur upp á að bjóða fyrir einstaklinga sem búa við fötlun eða aðra hömlun sem hindrar þá í námi. Úrræðin miða að því að jafna aðstöðu og tækifæri fólks til náms, þar sem tekið er sanngjarnt tillit til fötlunar eða sérþarfa fólks við nám og prófun.  

Skilyrði fyrir sérúrræðum er að fyrir liggi greining viðeigandi sérfræðings. 
   ·Með fötlun er hér átt við andlega eða líkamlega fötlun, samkvæmt skilgreiningu í
     2. gr. laga nr.
    59/1992 um málefni fatlaðra.
   ·Með sérþörfum / hömlun er hér átt við sértæka námsörðugleika og hamlanir sem
    hljótast af slysum, langvinnum veikindum eða af öðrum orsökum. 

Helstu úrræði sem eru í boði í sveinsprófi eru: 
   - Lengri próftími, við hvern klukkutíma er bætt við 15 mínútum.
   - Meira næði, sérstofa fyrir nemendur með lengri próftíma, mögulega einvera ef
     nauðsyn krefur.
   - Stækkuð eða lituð prófblöð.
   - Munnleg próf.
   - Hvíld í prófi án skerðingar á próftíma.

Hér er um almennan ramma að ræða en þarfir fólks eru ólíkar og því eru úrræðin að sama skapi einstaklingsmiðuð því er hvert tilvik metið sérstaklega. 

Hvert skal leita?
Náms- og starfsráðgjöf IÐUNNAR fræðsluseturs hefur yfirumsjón með sérúrræðum og skal einstaklingur sem óskar eftir slíku gefa sig fram við náms- og starfsráðgjöfina. Vegna allra sérúrræða skal nemandi skila inn greiningu eða vottorði frá þar til bærum aðila til námsráðgjafa. Það skal gert í síðasta lagi 2 vikum fyrir fyrsta próf. Sé greiningu/vottorði skilað eftir þennan tíma er ekki öruggt að náist að ganga frá sérúrræðum. Því er áríðandi að virða þessi tímamörk.



Slóðin mín:

Sérúrræði

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd