Spurt og svarað
Hvað tekur raunfærnimat langan tíma?
Raunfærnimat er ferli sem þú ferð í gegnum og vinnur með náms- og starfsráðgjafa í um 6 vikur. Skoðaðu ferlið sem er hér á heimasíðunni.
Hverjir meta mig?
Það er fagaðilar í iðngreininni sem hafa verið samþykktir af hagsmunaaðilum.
Er þetta stöðupróf?
Nei þú ferð í greiningarsamtal þar sem færni þín og þekking er skoðuð.
Eru skilyrði fyrir þátttöku?
Já, þú þarft að vera 25 ára gömul/gamall og geta sýnt fram ár 5 ára staðfestan vinnutíma í iðngreininni. Staðfestingin þarf að vera opinbert skjal þ.e.a.s. lífeyrissjóðsyfirlit eða skattaframtal.
Hvaða gögnum þarf ég að skila?
Þú þarft að skila staðfestingu á vinnutíma í 5 ár, námsferli og námssamningi?
Hver þarf þessi staðfesting að vera?
Staðfestingin þarf að vera opinbert skjal þ.e.a.s. lífeyrissjóðsyfirlit eða skattaframtal.
Í hvaða iðngreinum er raunfærnimetið?
Það hafa verið metnar 9 iðngreinar en það eru alltaf að bætast við fleiri iðngreinar með tímanum. Endilega hafðu samband því við viljum heyra í áhugasömum svo að við sjáum í hvaða greinum áhuginn liggur.
Hvað kostar þetta?
Þetta er þátttakendum að kostnaðarlausu. En þegar hann skráir sig í skólann þá þarf hann að borga skólagjöldin sín.
Þarf ég að fara í skóla eftir raunfærnimatið?
Já, til þess að ljúka því sem eftir stendur og almennu greinunum.
Hvenær kemst ég í sveinspróf?
Þegar þú hefur eða ert að burtfaraskrást úr skólanum og hefur lokið námssamningnum þínum. Þá þarftu að sækja um í sveinspróf.
Þarf ég að fara á námssamning?
Já það þurfa allir að klára tímann sinn á námssamning en hver námssamningur er skoðaður.
Þarf ég að fara til Reykjavíkur í raunfærnimat?
Það eru flestar greinar í mati í Reykjavík en það hefur aðallega verið unnið með Akureyri og Austurlandi að mati í ýmsum greinum.
Get ég klárað námið sem ég byrjaði í gamla kerfinu?
Nei fyrra nám og námssamningur er uppfært á nýja kerfið í náminu.
Hvernig klára ég það sem eftir stendur af skólahlutanum?
Náms- og starfsráðgjafinn aðstoðar þig við að gera námsáætlun sem hentar þér. Í dag er hægt að vera í námi í dagskóla, kvöldskóla, sumarskóla og í fjarkennslu.
Hvað þarf ég að fara á langan námssamning?
Upplýsingar um það fæst á heimasíðu menntamálaráðuneytisins eða hér.
Leit
Mynd













