Sveinspróf
Sveinspróf eru haldin a.m.k. einu sinni á ári í hverri iðngrein ef næg þátttaka næst. Til að fá frekari upplýsingar um sveinsprófið s.s. uppbyggingu sveinsprófs og nánari upplýsingar til próftaka velur þú viðeigandi grein hér fyrir neðan. Almennar upplýsingar um sveinspróf er hægt að nálgast hér.
Þegar nemi hefur útskrifast úr skóla og lokið samningsbundnu vinnustaðanámi getur hann sótt um sveinspróf. Með umsókninni þarf að fylgja afrit af burtfararskirteini úr skóla og lífeyrissjóðsyfirlit til að staðfesta vinnustaðanám skv. námssamningi.
Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi þarf að koma í viðtal til náms- og starfsráðgjafa.
Smelltu á þá grein sem þú vilt fá frekari upplýsingar um:
- Bygginga- og mannvirkjagreinar - húsasmíði, húsgagnasmíði, múraraiðn, málaraiðn, pípulagnir, veggfóðrun og dúkalögn.
- Farartækja- og flutningsgreinar - bílamálun, bifreiðasmíði og bifvélavirkjun.
- Hönnunar- og handverksgreinar - gull- og silfursmíði, klæðskurður, kjólasaumur, skósmíði og söðlasmíði.
- Matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinar - bakaraiðn, framreiðsla, kjötiðn og matreiðsla.
- Málm-, véltækni- og framleiðslugreinar - blikksmíði, rennismíði, vélvirkjun, stálsmíði og netagerð.
- Snyrtigreinar - hársnyrtiiðn og snyrtifræði.
- Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar - bókband, grafísk miðlun (þ.m.t. prentsmíð), ljósmyndun og prentun.


Aðalskrifstofur IÐUNNAR fræðslusetur eru að Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Bílgreinar IÐUNNAR fræðslusetur eru að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.
Sveinspróf
IÐAN hefur hlotið