Sveinspróf í framreiðslu
Sveinspróf í framreiðslu fer fram í maí 2013 í Hótel og matvælaskólanum í Kópavogi ef næg þátttaka fæst. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2013
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast inná www.idan.is . Umsækjandi þarf að framvísa staðfestum námssamningi, skila inn burtfararskírteini eða staðfestingu frá skóla um að hann ljúki námi á yfirstandandi önn og muni fá útgefið burtfararskírteini. Lífeyrissjóðsyfirlit, til staðfestingar á vinnustaðanámi, þarf að fylgja umsókn. Umsókn sendist til Iðan fræðslusetur, Skúlatúni 2, 105, R. s. 5906400
Þegar umsóknarfrestur er liðinn og ljóst er að próf verður haldið fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Sveinspróf eru haldin a.m.k. einu á ári í hverri iðngrein ef næg þáttaka næst. Sveinsprófsnefnd ákveður prófdaga og próftökustað.


Aðalskrifstofur IÐUNNAR fræðslusetur eru að Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Bílgreinar IÐUNNAR fræðslusetur eru að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.
IÐAN hefur hlotið