Nám- og starfsráðgjöf
Vinnumálastofnun veitir upplýsingar um bótarétt o.fl.
Menntatorg - Námsúrræði í atvinnuleit.
Upplýsingaveita - samstarf um menntunarúrræði. Þegar atvinnuástand landsins breyttist kom saman hópur aðila sem hefur yfirsýn yfir ýmis úrræði fyrir einstaklinga.
Námssamninga og sveinspróf.
Ertu með spurningar varðandi námssamninginn þinn eða sveinspróf vinsamlegast hafðu þá samband við skrifstofu IÐUNNAR, s: 590-6400. Hér getur aflað þér frekari upplýsinga um námssamninga og sveinspróf og einnig hvaða fyrirtæki hafa verið með nema áður.
Viðtal við náms- og starfsráðgjafa
Náms- og starfsráðgjafar IÐUNAR bjóða öllum í viðtal til sín. Best er að hafa samband við skrifstofu IÐUNNAR fræðsluseturs í sími 590-6400 og bókað viðtal hjá þeim eða með tölvupósti til náms- og starfsráðgjafanna. Rafrænar fyrirspurnir er hægt að senda á netfangið radgjof@idan.is.
Atvinnuumsóknir - ferilskrá
Þegar sótt er um starf þarf að huga að ýmsum atriðum s.s. atvinnuumsókn, ferilskrá og atvinnuviðtal. Náms- og starfsráðgjafar geta leiðbeint áhugasömum í gegnum ferlið. Hér getur þú nálgast uppsetningu á ferilskrá. Hér getur þú nálgast uppsetningu á kynningarbréfi.
Raunfærnimat
Hefur þú áhuga á að ljúka iðnnámi sem þú hefur starfað við? Ert þú 25 ára eða eldri og með 5 ára staðfestan vinnutíma í iðngreininni? Þá á þetta við þig. Hafðu samband við náms- og starfsrágjafa okkar, radgjof@idan.is eða í síma 590-6400. Hlökkum til að heyra frá þér!
Áhugasviðskannanir
IÐAN býður upp á tvær áhugasviðskannanir: STRONG og Í leit að starfi. Niðurstöður þeirra aðstoða einstaklinga við að bera kennsl á áhugasvið sitt og leiðbeina þeim við að afmarka ýmsa þætti þess, t.d. hvernig áhugasvið þeirra getur komið þeim að gagni í námi, starfi og tómstundum. Niðurstöðurnar koma sér vel við að skoða eigið sjálf og taka ákvörðun um nám og starfsval.
Nám og störf
Hér finnur þú upplýsingar um nám og störf í iðnaði.
Leit
Mynd









