image description

Hvers vegna gæðastjórnunarkerfi - hver er ávinningurinn?

IÐAN fræðslusetur og Mannvirkjaráð Samtaka iðnaðarins boða til fyrsta fundar í fundaröð um gæðastjórnun í byggingariðnaði.

Fundurinn sem ber yfirskriftina “Hvers vegna gæðastjórnunarkerfi – hver er ávinningurinn?” verður haldinn miðvikudaginn 24. október nk. kl. 8.30 – 10.00 í húsnæði IÐUNNAR í Vatnagörðum 20 í Reykjavík.Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 8.15.

Eftirfarandi flytja erindi á fundinum:

  • Jón Guðmundsson, fagstjóri bygginga hjá Mannvirkjastofnun
  • Guðrún Ólafsdóttir, gæðastjóri VHE
  • Eyjólfur Bjarnason, gæðastjóri Framkvæmdafélagsins Arnarhvols

Í lokin gefst tími fyrir fyrirspurnir og umræður.

Fundarstjóri er Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR fræðslueturs.

Allir velkomnir en nauðsynlegt er að skrá sig með því að smella á skráningarhnappinn hér fyrir neðan.

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband