InDesign Master class

Sagt er, að ef maður geri sömu handtökin aftur og aftur í InDesign, sé greinilegt að maður hafi misst af einhverju. Þá ætti nú að vera kominn tími til að bæta úr því.InDesign Master Class er hugsað fyrir þá sem vinna mikið með InDesign, en hafa takmarkaðan tíma til þess að skoða hvaða möguleikar hafa bæst við forritið síðustu misserin. Á síðustu árum hefur verið bætt við fjölmörgum þáttum til þess að auðvelda lausn verkefna. Þetta nýtist í gerð prentgripa, umbroti á bókum og bæklingum, auglýsingagerð svo fátt eitt sé nefnt.Meðal þess sem kíkt er á eru margar gerðir stíla, ekki bara Paragraph og Character stílar, töflur, script, Alternate Layout og margt fleira. Einnig er litið á hlutverk InDesign í stóra Creative Cloud samhenginu, hvernig það vinnur með InDesign og hvernig InDesign tengist öðrum forritum þar í gegn.Námskeiðið er uppfært í hvert skipti til þess að taka á því nýjasta sem fram hefur komið í forritinu. Einnig er fjallað um þær breytingar og umbætur á InDesign sem komið hafa fram síðustu misserin og skipta miklu máli við að auðvelda okkur vinnuna. Námskeiðið er því aldrei eins, þótt það hafi verið haldið í nokkur ár.Verkefni eru leyst í tengslum við efnið svo atriðin festist betur í minni og komið víða við. Unnið með nokkur verkefni þar sem koma fyrir öll algengustu viðfangsefni sem við rekumst á við gerð bóka og bæklinga, auglýsinga og veggspjalda.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband