Suðusmiðja - TIG suða Fínsuða í rústfríu stáli, áli og svörtu járni

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!

Markmiðið er að nemendur afli sér færni í að rafsjóða með TIG- suðu samkvæmt suðuferils lýsingum sem byggja á reglum EWF.

Nemandi sem lokið hefur suðusmiðju í TIG suðu:

  • Er fær um að sjóða flestar suður í kverk og plötu.
  • Hefur þá þekkingu sem er nauðsynleg er til að vinna sjálfstætt eftir suðuferils lýsingu með TIG- suðu í flestum suðustöðum í kverk og plötu. Einnig öðlast hann nægilega færni, leikni og öryggi í vinnubrögðum til að vera gjaldgengur á vinnumarkaði sem TIG- suðumaður til almennra starfa.
  • Veit hvar TIG- suða er einkum notuð í iðnaði, þekkir kosti hennar og takmarkanir, stöðlun og flokkun.
  • Hefur tileinkað sér meginatriði heilsuverndar og öryggismála, þekkir örugg vinnubrögð á verkstæði sem og á byggingarstað eða vinnusvæði undir berum himni.

Hver þátttakandi smíðar sér kolagrill sem hann fær til eignar í lok smiðju.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
20.05.2019mán.08:0016:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband