Staðnám

Iðntölvustýringar

Málmtæknimenn - vélstjórar

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!

Að loknu þessu námskeiði þekkir þú uppbyggingu iðntölvunnar og virkni, táknmyndir, örgjörva, innganga, útganga, tengingu við loka, skynjara, teljara og rofa, grunnhugtök forritunarmáls og „ladder-forritun“. Með þessa þekkingu að vopni getur þú sett upp og tengt iðntölvu við loka, skynjara, teljara og rofa, forritað iðntölvu með „ladder-forritun“ og látið hana stýra aðgerðum ásamt því að framkvæma villuleit í forriti og áttað þig á algengum bilunum. 

Fjallað er um uppbyggingu iðntölvunnar og tengingu hennar við jaðartæki, svo sem loka, skynjara, teljara og rofa. Farið er í uppbyggingu tákna og kerfismynda með aðstoð tölvu. Skoðuð virkni kerfa með hermun. Áhersla er lögð á að þátttakandi skilji stigarit („ladder-forritun“). Notaðar verða tölvur frá Koyo. Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við iðntölvukerfi en hafa litla þekkingu á því sviði. Það er jafnframt ætlað mönnum sem vilja rifja upp og bæta við þekkingu á iðntölvum og iðntölvustýringum.

 

 


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
11.05.2020mán.08:3016:30IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
12.05.2020þri.08:3016:30IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
13.05.2020mið.08:3016:30IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
14.05.2020fim.08:3016:30IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband