Staðnám

Sveppir og sveppatínsla

Matreiðslumenn, bakarar, nemar í matvæla- og veitingagreinum

Markmið námskeiðsins er að auka fræðslu um sveppi sem vaxa hér á landi og henta í matargerð, eins er fjallað um það hvaða sveppir henta ekki. Námskeiðið skiptist í tvennt. Í fyrri hluta er fyrirlestur og sýnikennsla í greiningu og frágangi á sveppum en í seinni hlutanum er farið út í skóglendi í verklega kennslu. Þátttakendur fá aðstoð og kennslu við að tína matarsveppi. Þeir greina og hreinsa sveppi. Fjallað er um helstu geymsluaðferðir sveppa og nýtingarmöguleika. Þátttakendur velja klæðnað sem hentar veðri, taka með sér fötur/körfur til að tína sveppina í, heppilegan hníf fyrir hreinsun og ílát fyrir uppskeruna til að taka með heim.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband