Staðnám

Ræðumennska og framkoma

Byggingamenn

Þetta er námskeið fyrir alla sem þurfa að tjá sig í minni eða stærri hópum, á myndböndum eða með öðrum hætti. Farið er í grunnatriði ræðumennsku bæði hvað varðar texta og flutning. Kennt hvernig ná á athygli og halda áhuga áheyrenda. Að efla þátttakendur í að tjá skoðun sína fyrir framan hóp af fólki og flytja mál sitt á hnitmiðaðan hátt, hvort sem er í starfi eða leik.

Kennd er kennd færni í að byggja upp ræður/texta og segja það sem þarf að koma á framfæri á skýran og skilmerkilegan hátt. Þátttakendur semja og flytja efni eða nota efni sem tengist vinnu þeirra á hverjum tíma. Kenndar leiðir til að efla sjálfstraust og takast á við streitu en skortur á því fyrrnefnda og of mikið af því síðara telst til helstu ástæða þess að einstaklingar óttast að tala fyrir framan hóp af fólki.

Námskeiðið fer fram með fyrirlestrum, umræðuum, verkefnum, dæmisögum og myndskeiðum. Á þessu námskeiði er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni verkefni milli skipta.

 


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband