Vökvatækni IV - vinnuvélar
Málmiðnaðarmenn - vélvirkjar - vélstjórar
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Sérhæft námskeið um vökvabúnað farartækja s.s. lyftara, krana, búkollur, hefla, traktorsgrafa o.fl.
Að námskeiðinu loknu þekkir þú mikilvæg atriði s.s. hlutfallsstýringar, magnstýringar, kraftstýringar, skaraða og óskaraða loka, forstýriloka, ójafnvægi, fæðingu forstýriloka, lagnir og sérhæfða hluta, efni í vökvakerfum, miðflæðilagnir, stjörnugírinn, stýrisvélar, slöngubrotsloka, sveiflur, titring og hljóð í vökvakerfum ásamt því að læra lagfæringar á þessum hlutum. Einnig verður farið yfir rétt val á olíum og kennt hvernig á að velja rétta loka í vökvakerfi með tilliti til notkunar. Þessa þekkingu munt þú síðan nýta þér á námskeiðinu til þess að auka stimpilhraða, stilla þrýstinema og loks teikna eða prófa „flóknar“ vökvakerfismyndir í FluidSim.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
10.11.2020 | þri. | 08:30 | 16:30 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
11.11.2020 | mið. | 08:30 | 16:30 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
12.11.2020 | fim. | 08:30 | 16:30 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |