Símasögur
prentsmiðir, blaðamenn, markaðsfólk, sölumenn
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
IÐAN kynnir í samstarfi við Glimrandi ehf námskeiðið Símasögur. Námskeiðið hentar þeim sem vilja læra að nota símann sinn sem tæki til að miðla. IÐAN býður félagsmönnum þátttöku á námskeiði Glimrandi sem er haldið dagana 28.febrúar og 7.mars næstkomandi frá 09.30 til 12.30 í gegnum Zoom. Á námskeiðinu læra þátttakendur að nota upptökuforritið Filmicpro á símanum og gæði myndatöku, lýsingar og hljóðupptöku Þá er einnig farið í flokkun efnis og skipulag vinnunnar. Þá er kennt á klippiforritið Kinemaster sem hentar símtækjum vel. Þátttakendur læra að búa til tímalínu og grundvallaratriði í hljóðvinnu, grafík og textun efnis.
Jane Mote, Joshua Kershaw og Connor Whitfeld kenna á námskeiðinu. Jane er þrautreynd í starfi fyrir fjölmiðla og hefur ma unnið fyrir BBC Worldwide og Discovery International, Joshua er eyndur kvikmyndagerðarmaður sem hefur gott auga fyrir skapandi nálgun í tökum og Connor er reynslumikill klippari.
Hjónin Gísli Þór Guðmundsson og Anna Hildur Hildibrandsdóttir hjá Glimrandi halda utan um vinnusmiðjurnar eru hafa bæði fjölbreytta reynslu af fjölmiðla- og menningarframleiðslustörfum.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
28.02.2022 | mán. | 09:30 | 12:30 | Fjarnám |
07.03.2022 | mán. | 09:30 | 12:30 | Fjarnám |