Staðnám
Plastsuða
Vélstjórar, Kælitæknimenn, Vélfræðingar, Véltæknimenn
Þetta námskeið er fyrir pípulagningamenn, lagnamenn og aðra sem vinna með plast í sinni vinnu. Markmið þess er að kenna þátttakendum aðferðir við plastsuðu. Fjallað er um plastlagnir almennt, farið er í efnisfræði plastlagnaefnis, undirbúning lagnavinnu og útfærslu hennar. Ítarlega er fjallað um samsetningaraðferðir lagna, viðgerðir og yfirborðsmeðhöndlun. Á námskeiðinu er unnið með spegilsuðu, múffusuðu og extruderingsuðu (þráðsuðu) og skýrslugerð varðandi plastsuðu. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.
Þetta námskeið er í boði sem fyrirtækjanámskeið