Grunnur í hreyfihönnun með After Effects og Figma
Hönnuðir, prentsmiðir, listamenn, stjórnendur markaðsstarfs, umbrotsmenn, blaðamenn
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Grunnatriði í gerð hreyfimynda með Adobe After Effects. Nemendur læra að hanna einfaldar hreyfimyndir sem fanga athygli og nýtast í markaðsstarfi fyrirtækja eða fjölmiðlum. Einnig verður farið í möguleika annarra forrita, svo sem Figma og hvernig nýta má það í gerð hreyfihönnunar t.a.m. vefborða.
Nemendur læra að hanna einfaldar hreyfimyndir sem fanga athygli og nýtast í markaðsstarfi fyrirtækja eða fjölmiðlum og fá leiðsögn í að leysa einföld verkefni og lagður góður grunnur í notkun á After Effects forritinu. Kennari: Steinar Júlíusson er reynslumikill og farsæll hreyfihönnuður og starfar hjá Brandenburg. Hann hefur starfað fyrir H&M, Acne Stockholm, Unicef á Íslandi, Borgarleikhúsið og Absolut Vodka. Steinar hefur áður kennt við LHÍ og hinn virta Berghs School of Communication.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
20.03.2023 | mán. | 18:00 | 21:00 | Rafmennt, Stórhöfða 27, 3.hæð |
23.03.2023 | fim. | 18:00 | 21:00 | Rafmennt, Stórhöfða 27, 3.hæð |
27.03.2023 | mán. | 18:00 | 21:00 | Rafmennt, Stórhöfða 27, 3.hæð |
30.03.2023 | fim. | 18:00 | 21:00 | Rafmennt, Stórhöfða 27, 3.hæð |