Staðnám

Greining á áhættu og áfallaþoli - stofnanir

Þetta námskeið er fyrir starfsmenn stofnana sem koma að greiningu á áhættu og áfallaþoli.  Tilgangur þess er að kenna þátttakendum hvernig staðið skuli að slíkum greiningum.  Öll sveitarfélög, stofnanir og ráðuneyti þurfa að gera greiningu á áhættu og áfallaþoli fyrir sín málefnasvið í samræmi við lög um almannavarnir nr. 82/2008.  Hlutverk Almannavarna er að styðja þessa aðila við þessa vinnu, hafa eftirlit með henni og veita fræðslu eftir þörfum. Til þess að uppfylla þær skyldur í þessu hefur Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra unnið leiðbeiningaefni til þess að auðvelda þeim vinnuna.  Á námskeiðinu er farið yfir skyldur, ábyrgð og hlutverk aðila og hugtök sem tengjast framkvæmd greiningarinnar.  Farið er í gegnum aðferðafræði við greiningu skref fyrir skref ásamt framsetningu, framkvæmd og eftirfylgni.  Einnig er fjallað um söfnun upplýsinga og skil á þeim til almannavarna.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband