Staðnám

Vinnusmiðja fyrir bakara með Josep Pascual

bakarar

Fjögurra daga vinnusmiðja með Josep Pascual fyrir bakara sem vilja skara fram úr. Josep fer yfir Pascual aðferðina; hæggerjun á brauði, skreytingar og aðferðir sem skila góðum árangri í keppnum í bakstri. Josep er virtur og margverðlaunaður bakari. Hann er yfirþjálfari spænska landsliðsins í bakstri og í dómnefnd á heimsmeistaramóti í bakstri.

Tveir dagar vinnusmiðjunnar eru helgaðir brauði og verður farið yfir 20 mismunandi, áferðir, bökunartækni og hönnun. Seinni dagarnir verða helgaðir sætabrauði og farið í mismunandi leiðir til gerjunar, skreytingar og hvernig má virkja sköpunargáfuna í þeirri vinnu.

 


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband