Þjónusta og samskipti
Hinn heimsþekkta stjórnunarfræðingur Peter Drucker sagði að það mikilvægasta í samskiptum er að heyra hvað ekki er sagt. Á námskeiðinu er áherslan því að sýna hvernig þú getur heyrt það sem viðskiptavinir þínir og samstarfsfólk segir með líkamstjáningu og raddbeitingu. Þarna geta smávægileg atriði haft mikil áhrif á hvort samskiptin og þjónustan verði árangursrík. Námskeiðið er samsett úr örþjálfunarmyndböndum með Erni Árnasyni leikara, íslenskri rafbók, rafrænni könnun og verkefnum.Markmið:-Skilja mikilvægi líkamstjáningar og raddbeitingar í þjónustu.-Átta sig á mikilvægi samskiptatækni í virkri hlustun.-Vita að jafnvel lítil atriði í samskiptatækni þinni geta haft mikil áhrif á upplifun annarra.-Styrkja öryggi í samskiptum og fagmennsku.Innfalið í námskeiði:-3 stutt þjálfunarmyndbönd þar sem Örn Árnason leikari sýnir á skemmtilegan hátt hvað virkar og virkar ekki í samskiptum og þjónustu.-Rafbókin Árangursrík samskipti með líkamstjáningu.-Viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.-Verkefni fyrir 3 vikur sem gefa þér tækifæri í að æfa þig í að lesa aðra og bæta eigin samskiptatækni.-Opið í 3 vikur og má taka allt í einu eða í áföngum á þeim tíma sem þér hentar.-Námskeiðið er einnig hægt að halda inni í fyrirtækjum