Skráning - Straumlínustjórnun
Straumlínustjórnun (e.Lean Management) er aðferðafræði sem snýr að því að hámarka virðissköpun í fyrirtækjum með því að koma í veg fyrir sóun úr ferlum og skapa menningu stöðugra umbóta. Á námskeiðinu munu þátttakendur kynnast grunnhugmyndafræði straumlínustjórnunar og læra um helstu tólin sem notuð hafa verið til innleiðingar á aðferðafræðinni í fyrirtækjum. Lagt verður upp með fjölbreyttar kennsluaðferðir á námskeiðinu og gagnvirkt flæði þátttakenda og leiðbeinanda.