Staðnám
Skráning - Greining á áhættu og áfallaþoli - stofnanir
Þetta námskeið er fyrir starfsmenn stofnana sem koma að greiningu á áhættu og áfallaþoli. Tilgangur þess er að kenna þátttakendum hvernig staðið skuli að slíkum greiningum. Á námskeiðinu er farið yfir skyldur, ábyrgð og hlutverk aðila og hugtök sem tengjast framkvæmd greiningarinnar. Farið er í gegnum aðferðafræði við greiningu skref fyrir skref ásamt framsetningu, framkvæmd og eftirfylgni. Einnig er fjallað um söfnun upplýsinga og skil á þeim til almannavarna.