Nú klárar þú sveinsprófið

Kynningarfundur um raunfærnimat verður haldinn fimmtudaginn 10. janúar nk. kl. 17.00 hjá IÐUNNI fræðslusetri að Vatnagörðum 20 í Reykjavík.

    Kynningarfundur um raunfærnimat verður haldinn fimmtudaginn 10. janúar nk. kl. 17.00 hjá IÐUNNI fræðslusetri að Vatnagörðum 20 í Reykjavík. Raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur öðlast í starfi og getur mögulega stytt nám þitt.

    Iðngreinar sem eru til mats vorið 2019 (ef næg þátttaka fæst): 

    • Húsasmíði, múraraiðn
    • Bifvélavirkjun, bifreiðasmíði, bílamálun
    • Matreiðsla og matartækni
    • Netagerð

    Inntökuskilyrði í raunfærnimat:  
    23 ára aldur og 3 ára reynsla úr viðkomandi grein (staðfest með opinberum gögnum)

    Nánari upplýsingar um raunfærnimat má finna hér á vefnum eða í síma 590 6400.

    Allir velkomnir.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband