Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir

    Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka fæst: 

    • Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn, 6. - 10. janúar 2020
      Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2019 
           
    • Í byggingagreinum í janúar 2020
      Umsóknarfrestur eru til 15. nóvember 2019
       
    • Í vélvirkjun í febrúar - mars 2020
      Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019
       
    • Í snyrtifræði í febrúar - mars 2020
      Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019
       
    • Í bifvélavirkjun í janúar - febrúar 2020
      Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019
       
    • Í hársnyrtiiðn í febrúar - mars 2020
      Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019

    Nánari dagsetningar prófanna verða birtar á vef okkar um leið og þær liggja fyrir.

    Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2019.

    Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

    Umsóknareyðublöð má sækja á skrifstofu IÐUNNAR að Vatnagörðum 20 eða hér á vefnum.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband