Sviðsstjóri prent- og miðlunarsviðs

IÐAN fræðslusetur óskar eftir sviðsstjóra prent- og miðlunarsviðs í sinn öfluga hóp starfsmanna.

    Sviðsstjóri vinnur náið með framkvæmdastjóra IÐUNNAR, sviðsstjórn prent- og miðlunarsviðs sem og sviðsstjórum matvæla-, veitinga- og bílgreinasviðs IÐUNNAR. 

    Helstu verkefni:

    • Stefnumótun fyrir sviðið auk rekstrar- og fjárhagsáætlunargerðar.
    • Skipulagning á fræðslustarfi fyrir prent- og miðlunargreinar.
    • Samstarf við lykilfólk í prent- og miðlunargreinum, innlendar og erlendar menntastofnanir og systurfélög vegna sí- og endurmenntunaráætlana.
    • Heldur utan um og stjórnar framleiðslu á nýjum námsleiðum eða námsefni og öðrum þjónustuþáttum.
    • Vinnur að þróun rafrænnar fræðslu - eftirfylgni með gerð vefnámskeiða, aðstoð við framleiðslu vefnáms.
    • Vinnur að almennum námskeiðum IÐUNNAR.

    Menntunar- og hæfniskröfur:

    • Framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og árangursdrifni.
    • Menntun sem nýtist í starfið.
    • Þekking á prent- og miðlunargreinum kostur.
    • Framúrskarandi vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
    • Þekking/reynsla af verkefnastjórnun.
    • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
    • Menntun í kennslufræði og/eða vefnámi er kostur .

    Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2019.

    Hægt er að sækja um starfið á vef Capacent.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband