Rjómalíkjörinn Jökla er íslensk framleiðsla

Jökla er fyrsti íslenski rjómalíkjörinn sem framleiddur er úr mjólkurafurðum. Pétur Pétursson mjólkurfræðingur á heiðurinn af drykknum sem mun koma í verslanir fljótlega.

Pétur Pétursson, mjólkurfræðingur
Pétur Pétursson, mjólkurfræðingur

    Pétur segir að hugmyndin að framleiðslunni hafi kviknað á ferðalagi um Ítalíu þegar hann borðaði hjá ítölskum bónda sem framleiddi sinn eigin mjólkurlíkjör. „Hann kom bara með könnuna á borðið" sagði Pétur sem fannst hugmyndin heillandi.

    Í kjölfarið fór Pétur að gera tilraunir og þar kom nám hans sem mjólkurfræðingur að góðum notum. Það sem kemur á óvart er að vínandinn í Jöklu er unnin úr ostamysu og engin þykkingarefni eru notuð við framleiðsluna. „Því má með sanni segja að hér verði mjólk að víni" segir Pétur og hlær.

    Pétur tók þátt í viðskiptahraðlinum Til Sjávar og sveita og segir hvatninguna þar skipta gríðarlegu máli í nýsköpun. Þarna mætti hópur fólks með nýjar hugmyndir, allir jákvæðir og allir hvetjandi. Það gefur manni kraftinn til að halda áfram segir hann.

    Þetta ferli er búið að vera langt og strangt og því er mikil hamingja með að sjá afurðina fara loksins á markað.

     

    Þú getur gerst áskrifandi að Augnablik í iðnaði á Spotify eða Soundcloud.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband