Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka næst

    • Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í janúar 2022. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2021.
    • Í byggingagreinum í janúar 2022. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2021.
    • Í vélvirkjun í febrúar - mars 2022. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021.
    • Í snyrtifræði í febrúar - mars 2022. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021.
    • Í bíliðngreinum í janúar - apríl 2022. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021.
    • Í hársnyrtiiðn í febrúar - mars 2022. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021.

    Nánari dagsetningar prófa verða birtar á vef IÐUNNAR um leið og þær liggja fyrir.

    Með umsókn skal leggja fram: afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2021. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum,

    Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veffang: www.idan.is og á skrifstofunni að Vatnagörðum 20.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband