Stóraukið samstarf atvinnulífs og skóla í vinnustaðanámi

Birtingarskrá fyrirtækja sem bjóða vinnustaðanám verður að veruleika og markar tímamót. Undanfarin fimm ár hefur starfsnámsnemum fjölgað um 30%. Starfsnámsnemar geta útskrifast fyrr og eiga möguleika á inngöngu í háskólanám að lokinni útskrift.

Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri IÐUNNAR fræðsluseturs, Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta -og menningarmálaráðherra og Svanur Grjetarsson framkvæmdastjóri MótX sem varð fyrstur til að skrá fyrirtæki á birtingarskrána.
Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri IÐUNNAR fræðsluseturs, Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta -og menningarmálaráðherra og Svanur Grjetarsson framkvæmdastjóri MótX sem varð fyrstur til að skrá fyrirtæki á birtingarskrána.

    Ný birtingarskrá yfir fyrirtæki, meistara og stofnanir sem bjóða vinnustaðanám verður hluti af rafrænni ferilbók og markar tímamót í þjónustu til nemenda. Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnaði birtingarskrána og fagnaði þörfum og góðum breytingum á vinnustaðanámi í dag. Um þessar mundir er verið að innleiða rafræna ferilskrá í öllu starfsnámi. Þar fara samskipti á milli skóla og vinnustaðar fram og þar er vitnisburðurinn um frammistöðu nema á vinnustað skráður. Vinnustaðanám í öllum iðngreinum hefur verið kortlögð og sú hæfni sem áskilin er fyrir hverja grein hefur verið brotin niður í verkþætti sem metnir eru á hverjum vinnustað og færð til bókar í rafrænni ferilbók.

    Nú ræður hæfni för í iðnnámi

    Nú ræður hæfni för en ekki fjöldi vikna á vinnustað líkt og áður var. Nemar eiga því möguleika á að útskrifast fyrr en áður. Þá hefur verið opnað fyrir þá tímabæru breytingu að starfsnámsnemar geta að lokinni útskrift fengið inngöngu í háskóla en síðastliðið vor voru samþykktar á Alþingi breytingar á lögum um háskóla sem opna fyrir að nemar með starfsmenntun geti hafið nám á háskólastigi. Samhliða þessu var ráðist í sérstakt kynningarátak á starfsnámi. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Undanfarin fimm ár hefur starfsnámsnemum fjölgað um 30%.

    Farsæl samvinna lykillinn að breytingum

    Breytingarnar á aðbúnaði nema í iðngreinum eru árangur farsællar samvinnu atvinnulífs og skóla. Lengi hefur verið bent á nauðsyn þess að fjölga möguleikum til starfsnáms hér á landi, einfalda umsýslu þess og gera kerfið í kringum það skilvirkara með það að markmiði að halda betur utan um nema og veita faglegri þjónustu. Með þetta að leiðarljósi hefur Mennta- og menningarmálaráðuneyti ráðist í umfangsmikla vinnu þar sem fjölmargir hagaðilar voru kallaðir að borðinu. Þessi aukna þjónusta, fagmennska og samvinna mun minnka brotthvarf úr starfsnámi sem mun skila margháttuðum ávinningi fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband