Auglýsing um sveinspróf

Stefnir þú á sveinspróf?

    Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst:

    • Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í janúar 2023. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2022.
    • Í byggingagreinum í janúar 2023. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2022.
    • Í vélvirkjun í febrúar 2023. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2022.
    • Í rennismíði í febrúar 2023. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2023.
    • Í snyrtifræði í febrúar – mars 2023. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2023.
    • Í bifvélavirkjun í febrúar – mars 2023. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2023.
    • Í hársnyrtiiðn í febrúar – mars 2023. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2023.

    Nánari dagsetningar verða birtar á vef Iðunnar fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir.

    Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2022.

    Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

    Umsóknareyðublöð má nálgast hér á heimasíðu okkar, og á skrifstofunni.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband