Mín framtíð 2023

Viðburðurinn Mín framtíð 2023 – Íslandsmót iðn- og verkgreina í Laugardalshöll nálgast óðfluga.

    Dagana 16. – 18. mars 2023 mun Verkiðn halda Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningu í Laugardalshöllinni í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina. 

    Að þessu sinni keppt í 22 faggrein þar sem keppendur takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.

    Greinarnar eru:

    Bakaraiðn, Bifreiðasmíði, Bílamálun, Fataiðn, Forritun, Framreiðsla, Grafísk miðlun, Gull- og silfursmíði, Hársnyrtiiðn, Húsasmíði, Kjötiðn, Matreiðsla, Málaraiðn, Málmsuða, Pípulagnir, Rafeindavirkjun, Rafvirkjun, Skrúðgarðyrkja, Snyrtifræði, Vefþróun, Veggfóðrun og dúkalögn og múraraiðn.

    Á Minni framtíð sýna einnig 15 iðn- og verkgreinar á mótssvæðinu og leyfa gestum jafnvel að prófa handtökin. Þá kynnir 30 framhaldsskóli námsframboð sitt og auðvitað verður Iðan einnig með veglegan bás í höllinni.

    Allar frekari upplýsingar má finna á vefnum Nám og störf.



     

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband