Farið verður í grundvallaratriði við afréttingar á ýmsum vélbúnaði. Dælur, mótorar, gírar og vélar verða réttir af bæði með klukkum og laser.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Á þessu námskeiði er fjallað um skyldur ábyrgðastjóra suðumála og hvað hann þarf að hafa í huga við skipulagningu suðuverkefna. Farið er Ítarlega í gegnum staðlana IST EN ISO 1090 og IST EN ISO 3834. TÜV gefur út viðurkenningu fyrir náminu. Kennarar: Steven Brown, Welding Services Manager Jacob Paul Bailey, ISO3834 & CPR FPC Scheme Manager Kennsla fer fram á ensku.
Kennari
Steven Brown, Welding Services ManagerFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Efniseiginleikar áls eru mjög frábrugðnir öðrum málmum og suða einnig. Farið er yfir efnisfræði áls og eiginleika. Fjallað um suðuaðferðir, prófanir og ýmsa samsetningar möguleika. Farið er í meðhöndlun efnis, hreinsun, undirbúning suðu og suðugæði. Í verklega hlutanum er soðið með TIG og MIG-suðuaðferðum.
Kennari
Hilmar Brjánn SigurðssonFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Nemendur fá kynningu á hvað ásprautun er, kaldsprautun og heitsprautun. Farið er í efnisfræði og vinnuvernd og gerðar verklegar æfingar. Sýndar verða aðferðir við viðgerðir á stálsteypu.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Farið er í virkni hvers konar tölvustýrðra iðnaðarvéla. Kennt er á rennibekk og fræsivél en keyrsla fræsivéla er mjög svipuð keyrslu annarra véla s.s. skurðarvéla, yfirfræsa (trésmíði) og lokka.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Farið verður í efnisfræði málma og áhrif hita á þá sérstaklega varðandi málmsuðu.
Kennari
Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur IWEFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Farið verður yfir þróun sólarsella. Skoðaðar verða helstu tegundir sólarsella, nýtni þeirra uppsetning o.fl. Helstu kostir og gallar sólarsella skoðaðir. Sett upp sólarsellu kerfi og það mælt. Skoðað verður arðsemismat.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Farið verður yfir helstu tegundir vatnsaflsvirkjana, hvað þarf að vera til staðar s.s. rennsli, vatnshæð og umhverfi. Skoðaðir verða helstu kostir og gallar vatnsaflsvirkjana. Skoðaðar verða mismunandi túrbínur og í hvaða tilfellum viðkomandi túrbínur henta best (Pelton, Fransis, Kaplan o.fl.)
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Farið verður yfir helstu tegundir vindhverfla, hvað þarf að vera til staðar s.s. vindhraði og umhverfi. Skoðaðir verða helstu kostir og gallar vindorku. Skoðaðar verða mismunandi gerðir spaða og fyrirkomulag þeirra, svo og í hvaða tilfellum viðkomandi spaðar henta best.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Kennt verður til vottunar fyrir "level I) Þykktarmælingar
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Að námskeiðinu loknu geta nemendur hannað vökvakerfi, framkvæmt hönnunarbreytingar á vökvakerfum, gert útboðsgögn og tekið út uppsett vökvakerfi.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Að loknu þessu námskeiði þekkir þú uppbyggingu iðntölvunnar og virkni, táknmyndir, örgjörva, innganga, útganga, tengingu við loka, skynjara, teljara og rofa, grunnhugtök forritunarmáls og „ladder-forritun“. Með þessa þekkingu að vopni getur þú sett upp og tengt iðntölvu við loka, skynjara, teljara og rofa, forritað iðntölvu með „ladder-forritun“ og látið hana stýra aðgerðum ásamt því að framkvæma villuleit í forriti og áttað þig á algengum bilunum.
Kennari
Guðmundur Rúnar BenediktssonFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Inntak námskeiðsins er miðað við að viðkomandi einstaklingar geti smíðað kerrur og fylgt öllum reglugerðum þar um. Að loknu námskeiðinu þekkir þú öryggi á vinnustað í málmiðnaði, mælitæki og öll helstu vélar og tæki í málmiðnaði og getur notað handverkfæri á réttan hátt. Einnig verður farið í spónlausa vinnu, spóntöku, málmskurðaraðferðir, helstu málmsuðuaðferðir, skrúfur, bolta og draghnoð og reglur um kerrur og búnað þeirra.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Farið verður yfir sjónskoðanir, vökvadeypni og segulagnaprófanir, helstu kosti og galla og takmarkanir hverrar aðferðar fyrir sig. Þátttakendur prófa sjálfir hinar mismunandi aðferðir.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Að loknu námskeiðinu þekkir þú hvernig kælimiðli er tappað af og bætt á kælikerfi, hvernig smurolíu er tappað af og bætt á kælipressur, innstillingu há- og lágþrýstiliða, hlutverk þurrkara og þurrkaraskipta og grunnatriði bilanaleitar. Með þessa þekkingu að vopni geturðu bætt kælimiðli á kæli- og frystikerfi, skipt um smurolíu, stillt há- og lágþrýstiliða, skipt um þurrkara og leitað bilana í kerfum.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Á námskeiðinu er farið í gegnum bæði fræðilega og verklega hlið á hönnun og rekstri kælikerfa framtíðarinnar með CO2 sem kælimiðil. Þetta námskeið veitir þér grunnþekkingu í hönnun, gangsetningu, rekstri og viðhaldi kælikerfa sem nota CO2 sem kælimiðil. Fræðilega kennslan er staðfest með verklegum æfingum þar sem þátttakendur fá að breyta innstillingum á CO2 æfingarkælikerfunum og sjá þau áhrif sem það hefur. Einnig er sýnt hvernig á að fylla og tæma kælikerfi með CO2 kælimiðli og bent á mismuninn samanborið við þekktari kælimiðla. Kennslan skiptist á milli fræðilegrar umfjöllunar, þekkingar og reynslu miðlunar, verklegra æfinga og sýnikennslu.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Inntak námskeiðsins er miðað við undirbúning til hæfnisvottunar í kæli- og frystitækni samkvæmt opinberum kröfum (nr. 1066/2019, 517/2014, 590/2018 og 2067/2015 um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir). Námskeiðið endar með mati til vottunar hjá UST. Kennsla: Tveir dagar 09.00 - 16.00 Próf í samráði við kennara: 6 klst.
Kennari
Kristján KristjánssonFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Farið verður yfir hinar ýmsu tegundir lega. Til hvers eru legur, hönnun o.fl. Ásetning lega, hvernig tökum við þær af ásum, smurning, ending og skemmdir. Hvaða verkfæri og lausnir eru til við hin ýmsu vandamál varðandi það að skipta um legur.
Kennari
Hilmar Brjánn SigurðssonFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Farið er yfir uppbyggingu hinna ýmsu gerða teikninga, t.d. kassateikningar, einlínuteikningar og straumrásarteikningar. Lögð er áhersla á að kynna alþjóðastaðalinn (IEC). Lögð er áhersla á lestur rafteikninga og þá helst af rafkerfum í skipum, sérstaklega iðntölvu stýringar. Rafkerfi á millidekkjum skoðuð. Að nemendur öðlist þjálfun í lestri rafmagnsteikninga, svo sem af rafkerfum skipa og geri sér grein fyrir uppbyggingu slíkra kerfa.
Kennari
Ekki skráðurFullt verð:
Verð til aðila IÐUNNAR:
Tilgangur námsþáttarins er að námsmenn kynnist uppbyggingu og virkni loftstýrikerfa og helstu einingum þeirra. Þeir fá þjálfun í lestri táknmynda samkvæmt ISO staðli og að þekkja samhengi flatar, þrýstings og krafts. Fjallað er um hvernig einingar loftstýrikerfa eru valdar og settar upp samkvæmt teikningu.