Sérúrræði í sveinsprófi

Fylltu úr umsóknarformið hér að neðan til að sækja um sérúrræði í sveinsprófi.
Ferli umsóknar er sem hér segir:

• Umsókn fyllt út um sérúrræði
• Náms- og starfsráðgjafi fær umsóknina og hefur samband við umsækjanda og óskar eftir greiningu
• Umsækjandi skilar inn greiningu og í viðtali við náms-og starfsráðgjafa er farið yfir hvaða úrræði eru í boði/standa til boða
• Náms- og starfsráðgjafi hefur samband við umsækjanda og staðfestir hvaða úrræði umsækjandi fær í prófinu

Vegna allra sérúrræða skal nemandi skila inn greiningu eða vottorði frá þar til bærum aðila til náms- og starfsráðgjafa. Það skal gert í síðasta lagi 2 vikum fyrir fyrsta próf. Mjög áríðandi er að virða þessi tímamörk.