Málmsuðudagurinn

Ókeypis viðburður
Iðan og Veldix bjóða upp á fræðandi og skemmtilega dagskrá. Erlendir sérfræðingar, léttar veitingar og Dóri DNA með uppistand.

Þekking, reynsla og framtíð málmsuðu

Málmsuðudagurinn er vettvangur þar sem fagfólk í málmsuðu kemur saman til að fræðast, ræða þróun greinarinnar og sækja innblástur ásamt því að hafa gaman. Hér mætast hagnýt reynsla, fræðileg nálgun og framtíðarsýn í suðutækni og menntun.

Staða stálsmíðamenntunar

Ólafur Jónsson hjá Nemastofu okkur innsýn í nýliðun í greininni og hvernig stálsmíðanemar geta útskrifast úr greininni.

Auknar kröfur kalla á breytingar

Þór Sigfússon, formaður sveinsprófsnefndar í stálsmíði segir frá fyrirhuguðum breytingum sem verða á sveinsprófi stálsmiða.

Nútíma kröfur í verkefnum í stálsmíði

Unnar Víðisson, hefur víðtæka reynslu af verkeftirliti á stálvirkjum. Unnar fjallar um þær kröfur sem eru í gildi þegar kemur að stálsmíði í dag og hvaða þekkingu stálsmiðir þurfa að búa yfir í verkum sínum.

Alþjóðleg sýn á menntun og kröfur

Jacob Paul Bailey, reyndur breskur suðuverkfræðingur, deilir reynslu sinni af flóknum verkefnum úr alþjóðlegum iðnaði og sýnir hvernig hagnýt kunnátta, fagleg nálgun og margra ára reynsla geta skapað fjölbreytt tækifæri og leitt til lykilstöðu innan greinarinnar.

Skemmtileg dagskrá og góð stemning

Að fræðslu lokinni er í boði að taka þátt í léttum suðuleik, þiggja veitingar og sjá stutt uppistand með Dóra DNA.

Staðsetning og tími
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

19. febrúar 2026 kl: 15:00 - 18:00
Fyrirlesarar
Ólafur Jónsson
Ólafur Jónsson
Nemastofa atvinnulífsins var stofnuð árið 2021 af Iðunni fræðslusetri og Rafmennt. Forstöðumaður Nemastofu er Ólafur Jónsson. Verkefni Nemastofu atvinnulífsins er að stuðla að fjölgun faglærðs starfsfólks á vinnumarkaði, styðja við og efla vinnustaðanám í iðngreinum, fjölga iðnfyrirtækjum sem bjóða vinnustaðanám, kynna iðngreinar og störf í iðnaði, taka saman og miðla upplýsingum um menntatölfræði iðngreina.
Þór Sigfússon
Þór Sigfússon, formaður sveinsprófsnefndar í stálsmíði.
Unnar Víðisson
Unnar Víðisson
Unnar Víðisson er Véltæknifræðingur B.Sc. Mikil reynsla af verkeftirliti með stálsmíði og samsetningum á stálvirkjum skv. ÍST EN ISO 1090-2, t.d. stálgrindarhús, lagnakerfi, göngupallar og brúarsmíði ásamt eftirliti með uppsetningu og frágangi vélbúnaðar.
Sérfræðiþekking af og mikil reynsla af suðueftirliti, suðuskoðun og þekking á gæðakröfum ÍST EN ISO 3834-1 til 4 og -stöðlum ásamt ábyrgðastjórnun suðumála
Mr. Jacob Paul Bailey
Mr. Jacob Paul Bailey
Technical Certification Manager