Gervigreind sem meikar sens – Lærðu að láta ChatGPT vinna fyrir þig
Námskeiðið er ætlað fagfólki í iðnaði og öllum þeim sem vilja:
Athugið: Grunnkunnátta í tölvu- eða farsímanotkun er nauðsynleg. Þátttakendur verða að vera sæmilega sjálfstæðir í notkun tækisins að því leiti sem snýr ekki að ChatGPT forritinu. Þátttakendur skulu fara varlega og tryggja að þeir séu að sækja og kaupa sér rétta þjónustu þar sem ýmsar eftirhermur eru til. Í snjallsímum skal leitað að “ChatGPT” eftir “OpenAI” og á netinu skal nota https://chatgpt.com/
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að búa þátttakendur undir árangursríka, hagnýta og sjálfstæða notkun gervigreindarlausna eins og ChatGPT, með áherslu á:
Lýsing:
Námskeiðið skiptist í tvo hluta.
Fyrri hluti
Kynnir undirstöðuatriði spunagreindar og veitir yfirlit yfir helstu verkfæri ChatGPT. Farið er yfir grunnhugtök, notendaviðmót og einfaldar aðferðir til að leysa dagleg verkefni með gervigreind. Þá er einnig rætt um rétt viðhorf til tækninnar, ásamt því að skoða möguleika og takmarkanir hennar.
Seinni hluti Byggir ofan á grunninn frá fyrri hluta og beinir sjónum að sértækari notkun ChatGPT. Farið er yfir fjölbreyttari tól og tengingar, svo sem vinnslu myndefnis, tal- og myndbandssamtöl og verklags sem hentar mismunandi iðnaðarverkefnum. Áhersla er á verklega nálgun, raunhæf dæmi og hagnýt verkefni.
Forkröfur: Grunnfærni í tölvum og snjalltækjum.
Tæki og tól: Þátttakendur þurfa að hafa með sér snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu. Einnig er krafist greiddrar áskriftar að ChatGPT fyrir námskeiðið.
Tungumál: Kennt er alfarið á íslensku
Lengd: 6 klst. kenndar yfir einn dag (9:00–12:00 og 13:00–16:00)
Námsmat: Það er ekki formlegt próf, en þátttakendur fá verkefni til að vinna á staðnum. Að námskeiði loknu fá allir staðfestingarskírteini.
Kennarar: Kennslan er leidd af starfsmönnum Javelin AI, fyrirtækis sem sérhæfir sig í fræðslu og ráðgjöf tengdri gervigreind. Starfsmenn Javelin AI eru sérfræðingar í gervigreind og hafa haldið námskeið og fyrirlestra á sviði gervigreindar fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana síðan 2023.
Staðsetning: Kennslan fer fram í kennslusal hjá Iðunni. Einnig kemur til greina að halda það á staðnum hjá fyrirtækjum og á landsbyggðinni eftir óskum.
Sverrir Heiðar og fyrirtæki hans Javelin hefur mikla reynslu af gervigreind og miðlun hennar til Íslendinga