Styrkir

Haustið- pixel

Námsstyrkur úr fræðslusjóði prentgreina

Prenttæknisjóður og fræðslusjóður GRAFÍU styrkja dyggilega við félagsfólk sem vill bæta við þekkingu sína í námi eða fara í tómstundanám. Rétt á styrkjum á það félagsfólk sem á aðild að GRAFÍU og starfar í prent – og auglýsingaiðnaði í samræmi við kjarasamninga SA og SÍA við Grafíu.

Prenttæknisjóður veitir styrkir til starfstengds náms og greiðir niður allt að 75% af námskeiðsgjaldi. Fræðslusjóður styrkir nám og tómstundanám hjá viðurkenndum fræðsluaðilum sem er ekki starfstengt.

Auk þess veitir sjóðurinn ferðastyrki vegna náms erlendis. Umsækjendur í virkri atvinnuleit fá undanþágu frá almennum reglum sjóðsins.

Sótt er um styrki á Mínum síðum á rafis.is en GRAFÍA er eitt aðildarfélaga Rafís.