Styrkir
Iðan veitir einstaklingum og fyrirtækjum aðgang að fjölbreyttum styrkjum til náms, endurmenntunar og starfsþróunar.
Hér finnur þú upplýsingar um styrkjamöguleika, skilyrði og hvernig hægt er að sækja um.
Ferðastyrkir til félagsmanna vegna námskeiða
Iðan fræðslusetur veitir styrki vegna ferðakostnaðar til félagsfólks á landsbyggðinni til að sækja námskeið.
Fyrirtækjastyrkir í samstarfi við Áttina
Fyrirtæki geta sótt um styrk til Iðunnar ein og sér eða í samvinnu við önnur fyrirtæki, fræðsluaðila og/eða stéttarfélög sem aðild eiga að Iðunni, í gegnum vefinn attin.is
Fræðslusjóður matvæla -og veitingagreina
Félagsfólk fær styrki til náms samkvæmt reglum Matvís um úthlutun endurmenntunar- og námsstyrkja. Félagsfólk á rétt á námsskeiðsstyrk sem nemur allt að 40% námskeiðsgjalds en aldrei hærri upphæð en 75.000 kr. á ári. Sækja þarf um á Mínum síðum inni á heimasíðu Matís.
Fræðslusjóður prent- og miðlunargreina
Félagsfólk í prentgreinum fær styrki til náms úr fræðslusjóði prent- og miðlunargreina. Rétt á styrkjum eiga þeir félagsmenn sem eiga aðild að GRAFÍU og starfa í prent – og auglýsingaiðnaði í samræmi við kjarasamninga SA og SÍA við Grafíu.
Sótt er um styrki úr fræðslusjóðnum á mínum síðum á Rafis.is.
Umsókn um námsstyrk vegna aukinna ökuréttinda
Félagsfólk sem greitt er af í endurmenntunarsjóði Iðunnar geta sótt um styrki vegna náms til aukinna ökuréttinda. Viðkomandi þarf að færa rök fyrir umsókn sinni en skilyrði fyrir veitingu styrks er að aukin ökuréttindi tengist starfi á fagsviði viðkomandi starfsmanns.