Hvað er Erasmus+

Iðnnemar, nýsveinar, leiðbeinendur og nefndarfólk hjá Iðunni eiga þess kost að sækja um Erasmus+ styrk til námsdvalar í öðru Evrópulandi.

Dýrmæt reynsla

Markmiðið með námsdvöl í öðru landi er að kynnast betur sínu fagi í alþjóðlegu samhengi og veita innsýn í líf og störf fólks í útlöndum.

Reynslan af slíkri námsdvöl er dýrmæt og getur aukið starfsmöguleika bæði heima og erlendis. Iðan fræðslusetur leggur áherslu á gæði námsmannaskipta í Evrópu. Unnið er eftir ákveðnum verklagsreglum sem eru settar af Erasmus+ og EQAMOB gæðaviðmiða.

Styrkupphæðir taka mið af lengd dvalar og eru mismunandi milli landa. Erasmus+ styrkir eru veittir nýsveinum, iðnnemum og starfsfólki. Hér að neðan má lesa reynslusögur fólks sem hefur notið stuðnings Iðunnar til að auka á fagþekkingu sína og víkka sjóndeildarhringinn.

„Ávinningurinn fyrir Velti er að við fáum miklu meiri fagmann til baka, reynslumeiri og veraldarvanari mann, sem skilar sér í betri nýtingu fyrir verkstæðið.“
Ingólfur Már Magnússon, þjónustustjóri hjá Velti.

Umsókn um Erasmus+ styrk vegna námsdvalar í Evrópu

Fyrir hverja eru styrkirnir?

Iðnnemar og nýsveinar geta sótt um styrk til námsdvalar í útlöndum í að lágmarki 4 vikur. Oftast er þó dvalið í lengri tíma en það. Einnig geta leiðbeinendur og nefndarmenn hjá Iðunni farið í námsheimsóknir í skóla eða fyrirtæki og er þá miðað við sú heimsókn sé ekki skemur en 2 dagar.

Hvaða iðngreinar eru í boði?

  • Bíliðngreinar
  • Bygginga- og mannvirkjagreinar
  • Matvæla- og veitingagreinar
  • Málm- og véltæknigreinar
  • Prent- og miðlunargreinar
  • Snyrtigreinar

Hvað má draga frá styrkjum á framtali?

Meginreglan er að allir styrkir til einstaklinga teljast til skattskyldra tekna þeirra hvaðan sem styrkjanna er aflað. Upplýsingar um skattskylda styrki má finna hér.

Gæðavottun

Iðan hefur hlotið svokallaða aðild að Erasmus+ (e. accredidation) sem þýðir að Iðan uppfyllir ákveðin gæðaviðmið og fylgjum skilgreindri áætlun. Aðildin staðfestir jafnframt að Landskrifstofa Erasmus+ viðurkennir hæfni Iðunnar til að skipuleggja og framkvæma náms-og þjálfunarverkefni sem byggja á alþjóðastefnu Iðunnar.